Þingvallakirkja er að jafnaði opin yfir sumartímann 1.júní - 31.ágúst frá 09.00-12:00 og 13:00-16.00. Miðast opnunartímar þó við að starfsmaður geti verið í og við kirkjuna.
Fyrir sérstaka opnun sendið tölvupóst á thingvellir@thingvellir.is
Umgengnisreglur um Þingvallakirkju voru samþykktar í nóvember 2019.
Sóknarprestur í Þingvallakirkju er sr. Kristín Þórunn Tómasdóttir. Hægt er að ná í Axel með tölvupósti kristin.tomasdottir@kirkjan.is.
Hægt er að fá upplýsingar og bóka athafnir í Þingvallakirkju í gegnum síma 8480672 eða með netfanginu thingvellir@thingvellir.is.
Greiða þarf 20.000 kr. fyrir athafnir í Þingvallakirkju til að mæta kostnaði við þrif og kirkjuvörslu á meðan á athöfnum stendur.
Núverandi Þingvallakirkja var reist 1859 en turninum bætt við fyrir konungskomuna 1907.