Móttaka hópa


Fyrirlestur í Snorrabúð
Fjölbreyttar gönguleiðir eru á Þingvöllum. Hægt er að aðlaga fræðslu okkar að því sem þú vilt upplifa.
Á hverju ári tekur þjóðgarðurinn á Þingvöllum á móti ýmsum hópum hvaðanæva að úr heiminum. Veitt er fræðsla um sögu og náttúru staðarins ásamt framtíðarþróun þjóðgarðsins í átt að sjálfbærari starfsemi. Hægt er að haldar hefðbundnar kynningar í fyrirlestrasal þjóðgarðsins, Snorrabúð, sem staðsett er í gestastofunni á Haki og fara í lengri eða skemmri gönguferðir um hina margvíslegu göngustíga þjóðgarðsins. Gott er að hafa samband í gegnum thingvellir@thingvellir.is og spyrjast fyrir um mögulega móttöku.

Skólaheimsóknir
Skólaheimsóknir til Þingvalla hafa verið vinsælar í gegnum árin. Öll skólastig leggja land undir fót og heimsækja Þingvelli á einhverjum tímapunkti. Þó jafnan sé mest að gera í tengslum við slíkar heimsóknir að vori þá er boðið upp á skólamóttöku árið um kring.

Móttaka og fræðsla
Tilvist þjóðgarðsins byggist á fræðslu til sem flestra. Þó vissulega séu skólahópar í miklum meirihluta hefur þjóðgarðurinn einnig tekið á móti fjölmörgum hópum frá stofnunum, félagasamtökum og ferðahópum (h)eldri borgara.