Sungið með landinu á Þingvöllum 23. júní

Áframhaldandi kórasöngur

Kórar halda áfram að syngja

Sem liður í lýðveldisafmæli Íslands er opið fyrir kórasöng alla sunnudaga í júni og júlí.

Sunnudaginn 23. júní munu tveir kórar koma fram við Lögberg í Almannagjá. 

Klukkan 13:00 Vörðukórinn
Klukkan 13:30 Mótettukórinn

Hljómburðurinn í gjánni er einstakur og fátt sem lífgar jafn mikið upp á andann og góður söngur úti í náttúrunni.