Velkomin til Þingvalla
![](/media/y43k4jzb/syning3.jpg?width=920)
Ljósmyndarinn Gunnar Geir stillir sér hér upp við ljósmyndirnar á sýningunni Velkominn til Þingvalla
Þingvellir Þjóðgarður
Velkomin til Þingvalla er heiti nýrrar sýningar sem opnaði sunnudaginn síðastliðinn í gestastofu þjóðgarðins á Haki. Ljósmyndir, Gunnars Geirs Vigfússonar ljósmyndara, af heimsóknum erlendra þjóðarleiðtoga, gestgjafa þeirra og stórhátíðir á Þingvöllum síðastliðin 50 ár prýða sýninguna.
Ferill Gunnars á Þingvöllum nær yfir ótölulegan fjölda heimsókna þjóðarleiðtoga og annars fyrirfólks sem hefur verið boðið velkomið til Þingvalla.
![](/media/mvibriur/syning6.jpg?width=920)
Í gær flutti herra Guðni Th.Jóhannesson um mikilvægi ljósmynda en jafnframt orða til að lýsa landi og þjóð. Bar hann gott orð á ljósmyndir Gunnars Geirs.
Þingvellir Þjóðgarður
![](/media/03wblxel/syning5.jpg?width=920)
Hátt í 100 manns mættu á opnunina í gær
Þingvellir Þjóðgarður
Gunnar Geir hefur ljósmyndað þrjár stórhátíðir á staðnum, 1100 ára afmæli Íslandsbyggðar, 50 ára afmæli lýðveldis og kristnitökuhátíðina. Af öðrum atburðumstendur upp úr heimsókn Jóhannesar Páls páfa II, Elísabetar II Bretadrottningar og Jiang Zemin Kínaforseta.
Fyrsta mynd Gunnars í tilefni opinberrar heimsóknar á Þingvöllum var koma Margrétar Þórhildar Danadrottningar árið 1973. Nú 50 árum síðar hefur safnast í myndabanka Gunnars eftir því sem heimsóknum erlendra ráðamanna hefur undið fram. Sýningin er ferðalag um tímann þar sem umhverfi staðarins breytist lítið en ný andlit birtast á hverri mynd.
Sýningin er í gallerígangi sem er inn af margmiðlunarsýningunni Hjarta lands og þjóðar í gestastofu þjóðgarðsins.
![](/media/1x4pion3/syning4.jpg?width=920)
Gunnar athugaði fyrir opnun hvort allt væri ekki allt rétt uppsett.
Þingvellir Þjóðgarður
![](/media/sjkdqpow/syning7.jpg?width=920)
Gunnar Geir Vigfússon, hr. Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson fyrrverandi forseti Íslands og Einar Á. E. Sæmundsen þjóðgarðsvörður.
Þingvellir Þjóðgarður
![](/media/2nqna0dd/syning8.jpg?width=920)
Guðni Th. Jóhannesson forseti kom inn á að Gunnar Geir hefði líklegast myndað flestar ríkisstjórnir Íslands.
Þingvellir Þjóðgarður