Auglýst er eftir landvörðum
Þjóðgarðurinn á Þingvöllum auglýsir eftir landvörðum í ótímabundin störf frá 16. maí 2023.
Auglýsingin er birt á Starfatorgi Stjórnarráðsins og er sótt um starfið í gegnum vef Starftorgs.
Fyrirspurnunm vegna starfanna er hægt að beina til:
Jóna Kolbrún Sigurjónsdóttir, Verkefnastjóri - jona@thingvellir.is
Fanney Einarsdóttir - fanney@thingvellir.is
Störf landvarða hjá þjóðgarðinum á Þingvöllum eru fjölbreytt, skemmtileg og krefjandi. Um vaktavinnu er að ræða og er starfsmönnum ekið til vinnu í upphafi vaktatarnar og frá vinnu í lok hennar.
Helstu verkefni og ábyrgð
Starf við landvörslu felst m.a. í eftirliti með náttúru og umhverfi Þingvalla, umgengni, veiði, tjaldsvæðum og þjónustu við ferðamenn. Landverðir sjá um fræðslu, upplýsingagjöf og móttöku gesta, sinna léttu viðhaldi á innviðum, þrifum, upplýsingagjöf í þjónustumiðstöð og gestastofu á Haki ásamt öðrum tilfallandi verkefnum.
Hæfniskröfur
- Reynsla af landvörslu er kostur en ekki skilyrði
- Landvarðarréttindi er skilyrði
- Grunnþekking í skyndihjálp er kostur en ekki skilyrði
- Kunnátta í íslensku og ensku er skilyrði. Frekari tungumálakunnátta er kostur
- Ökuréttindi og hæfni til að aka bæði sjálf- og beinskiptum ökutækjum er skilyrði
- Umsækjendur skulu hafa hreint sakavottorð
- Reynsla af útivist og náttúrutúlkun er kostur en ekki skilyrði
- Umsækjandi þarf að búa yfir frumkvæði, vera jákvæður og með ríka þjónustulund
- Krafa er gerð um hæfni í mannlegum samskiptum og hafa ríkan samstarfsvilja
- Umsækjendur þurfa að tileinka sér þekkingu á þjóðgarðinum og nærumhverfi hans
- Umsækjendur þurfa að geta gengið í öll þau störf sem fyrir þá eru lögð
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Báran, stéttarfélag hafa gert.
Ferilskrá skal fylgja umsókn og skulu umsóknir fara í gegnum starfatorg.is.
Umsókn getur gilt sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út
Öll kyn eru hvött til að sækja um.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 20.02.2023