Gestastofa opnar seinna 12.12 og 14.12
11.12.2023
Gestastofa þjóðgarðsins opnar seinna en venjulega eða um 09:30 vegna jólafundar starfsfólks þjóðgarðsins. Mun þetta eiga sér stað bæði á morgun, þriðjudaginn 12.12 og aftur fimmtudaginn 14.12.
Þjóðgarðurinn er að sjálfsögðu öllum opinn og salernishús til taks.
Afsakið óþægindin.
Útsýnispallurinn á Haki nærri gestastofunni býður oft upp á einstök sjónarhorn. Nú í desember er sólarupprás ekki fyrr en eftir 11:00.