Viðgerðir á bílastæðum

Fyllt verður í og malbikað yfir brotholur á bílastæðum í þjóðgarðinum fimmtudaginn 15. ágúst. Vegna viðgerða verður bílastæðið við Valhöll, P5, lokað til klukkan 11:00 en í staðinn verður bílastæðið við Flosagjá, P4 opnað. 

Þá verður malbik við innkeyrslu að bílastæðinu við Silfru lagað og nokkrar brotholur upp við gestastofu á Haki, P1. 

Reynt verður eftir fremsta megni að láta þessar lagfæringar hafa sem minnst áhrif á umferð. 


Lokað á P5 en opið á P4

Vegna framkvæmda verður bílastæðið við Valhöll, P5, lokað til klukkan 11:00 en í staðinn verður bílastæðið við Flosagjá, P4, opið. 

Valhöll, P5 er sýnt á kortinu sem skyggt svæði.