Kárastaðastígur viðgerð

Viðgerð í göngustíg

Efsti hluti Kárastaðastígs verður lokaður milli 18:00 - 23:00 frá og með sunnudeginum næstkomandi. 

Vegna viðgerða verður efsti hluti göngustígsins í Almannagjá lokaður, frá og með sunnudeginum 6. október, milli 18:00 - 23:00 alla daga fram í lok október. Unnið er að viðgerð á göngubrúnni en þörf er á að skipta út borðum í gólfi brúarinnar. 

Vegfarendur er vinsamlegast beðnir um að virða lokun því öll umferð tefur vinnu við viðgerð..