Gestastofa lokar 16:00

Upplýsingaborð gestastofu þjóðgarðsins á Þingvöllum lokar klukkan 16:00. Starfsfólk þjóðgarðsins er að fá kynningu á nýjum stofnanasamningi og ýmsu fleiru af hendi stéttarfélags síns.

Kaffi- og veitingasalan verður áfram opin til 17:00. Beðist er velvirðingar á óþægindum sem þetta kann að skapa. 

Þjóðgarðurinn sjálfur er vitaskuld áfram öllum opin þó vissulega sé orðið nokkuð dimmt svona seinnipartinn.