Ferðaþjónustudagurinn 2024

Ferðaþjónustudagurinn 2024 – takið daginn frá!

Ferðaþjónustudagurinn 2024 verður haldinn í Hörpu mánudaginn 7. október undir yfirskriftinni „Álagsstýring á fjölsóttum ferðamannastöðum“.

Ráðstefnan fer fram í Silfurbergi og hefst kl. 9.00 og stendur til 16.30.

Samtök ferðaþjónustunnar standa að Ferðaþjónustudeginum 2024 í samstarfi við Ferðamálastofu, Umhverfisstofnun, Vatnajökulsþjóðgarð og Þingvallaþjóðgarð.

Álagsstýring – áskoranir og tækifæri

Á ráðstefnunni verður fjallað um álagsstýringu á fjölsóttum ferðamannastöðum, þar sem sjónum verður meðal annars beint að áskorunum og reynslu hér á landi sem og erlendis og samtali stjórnvalda og fyrirtækja í ferðaþjónustu um þetta mikilvæga viðfangsefni.

Þá verður jafnframt horft til nýsamþykktrar ferðamálastefnu í þessu samhengi sem leggur áherslu á þrjár víddir sjálfbærnihugtaksins – efnahag, samfélag og umhverfi.

Erlendir og innlendir fyrirlestrar ásamt umræðum

Fyrirlesarar frá stofnuninni Department of Conservation í Nýja Sjálandi, Visit Scotland og Þjóðgarðastofnun Bandaríkjanna (e. National Park Service) munu segja frá skipulagi álagsstýringar á ferðamannastöðum í þessum þremur löndum, rýna í raundæmi og fjalla um reynslu af útfærslu og framkvæmd stýringar á álagi í samhengi við ávinning og áskoranir ferðaþjónustufyrirtækja.

Takið mánudaginn 7. október frá!

Nánari upplýsingar um dagskrá og miðasölu verða kynntar í byrjun september. 

Facebook viðburð má nálgast hér.

Við hlökkum til að sjá ykkur!

Samtök ferðaþjónustunnar, Ferðamálastofa, Umhverfisstofnun, Vatnajökulsþjóðgarður og Þingvallaþjóðgarður