Eftir storminn
Um leið og veðrið gekk ögn niður var fólk mætt í þjóðgarðinn.
Þingvellir Þjóðgarður
Það þarf oft að hafa snör handtök á Þingvöllum. Um leið og veðrið slotaði ögn var vegurinn yfir Mosfellsheiði opnaður. Gestir lögðu því land undir fót og skunduðu til Þingvalla. Enn var veðrið nokkuð leiðinlegt þótt greiðfært væri. Bæði starfsfólk þjóðgarðsins sem og verktakar brugðust hratt við og mokuðu frá helstu göngustígum og byggingum.
Það var bæði náttúra og starfsfólk sem blésu snjónum til í morgun.
Þingvellir Þjóðgarður
Sumir gestir brugðu á það ráð að njóta Þingvalla til að byrja með innandyra. Fóru þau á sýninguna Hjarta lands og þjóðar sem er í gestastofunni á Haki.
Þingvellir Þjóðgarður
Þingvallavatn blasti við þeim gestum sem ákvaðu að fara á útsýnispallinn en þó var skýjað til fjalla.
Þingvellir Þjóðgarður
Strax snemma morguns hafði verktaki þjóðgarðsins þegar farið í gegnum Almannagjá og gert hana greiðfæra.
Þingvellir Þjóðgarður