Appelsínugul veðurviðvörun 07.02
06.02.2023
Veðurstofa Íslands hefur gefið út appelsínugula veðurviðvörun fyrir þriðjudaginn 07.02. Veðrið skellur á snemma morguns og gengur hratt yfir. Samkvæmt spánni verður mikill vindhraði og úrkoma líklegast í formi snjókomu.
Búast má við að vegir verði ófærir en fylgjast má með færð vega á heimasíðu Vegagerðarinnar.
Vegna veðurs og mögulegra lokana á vegum má ætla að opnunartími gestastofu á Haki og þjónustumiðstöðvar á Leirum raskist þar sem starfsfólk kemst ekki til Þingvalla.
Við mælum með að fólk haldi sér heima fyrir og fylgist með færð og veðri á eftirfarandi síðum:
www.vedur.is
Appelsínugl veðurviðvörun
Ekkert ferðaveður verður fyrripart morgundagsins og jafnvel fram eftir degi.