17. júní á Þingvöllum
16.06.2023
Í tilefni þjóðhátíðardagsins 17. júní verður frítt inn á sýninguna Hjarta lands og þjóðar sem er staðsett í gestastofu þjóðgarðsins á Hakinu.
Þar er ennfremur að finna tímabundna ljósmyndasýnininguna Velkomin til Þingvalla. Þar eru ljósmyndir af þjóðhöfðingjum, gestgjöfum þeirra og hátíðum á Þingvöllum myndaðar af Gunnari Geir Vigfússyni síðastliðin 50 ár.
Verið öll velkomin og njótið Þingvalla á þjóðhátíðardaginn.
1100 ára afmæli
1100 ára afmæli Íslandsbyggðar var fagnað á Þingvöllum. Hér er ein mynd Gunnars Geirs Vigfússonar sem má finna á sýningunni Velkomin til Þingvalla.