Kórasöngur í Almannagjá

Kórasöngur í Almannagjá
Hér má sjá skólakór Smáraskóla sem söng síðasta sunnudag á Þingvöllum.
Þingvellir
Kórasöngur í Almannagjá við Lögberg heldur áfram hjá okkur.
Sunnudaginn 22. júní verða tveir kórar; Mótettukórinn og síðan kvennakórinn Vox feminae.
Sunnudaginn 22. júní verða tveir kórar; Mótettukórinn og síðan kvennakórinn Vox feminae.
13:00 - Mótettukórinn
13:30 - Vox feminae
Um Mótettukórinn
Mótettukórinn var stofnaður árið 1982 og hefur lengi verið meðal fremstu kóra landsins. Stefan Sand er stjórnandi Mótettukórsins.
Mótettukórinn var stofnaður árið 1982 og hefur lengi verið meðal fremstu kóra landsins. Stefan Sand er stjórnandi Mótettukórsins.
Kórinn var upphaflega stofnaður sem kirkjukór Hallgrímskirkju en hefur frá árinu 2021 starfað á eigin vegum. Verkefnalisti kórsins er langur og fjölskrúðugur og má þar finna fjölmargar óratóríur, passíur og sálumessur en líka kórverk án undirleiks frá ýmsum tímum, auk þess sem kórinn hefur frumflutt fjölda íslenskra tónverka. Mótettukórinn hefur farið í margar tónleikaferðir, sungið í helstu dómkirkjum Evrópu og tekið þátt í tónlistarhátíðum á borð við Listahátíðina í Björgvin, Norrænu kirkjutónlistarhátíðina í Gautaborg og Wiener Festwochen í Vínarborg.
Um Vox feminae
Kvennakórinn Vox feminae var stofnaður í Reykjavík árið 1993. Stjórnandi kórsins er Stefan Sand en hann tók við kórnum í janúar 2023. Kórfélagar eru um 40 talsins frá 18 ára aldri. Trúarleg tónlist ásamt íslenskum þjóðlögum og sönglögum hefur einkennt lagaval kórsins, en jafnframt hefur kórinn lagt rækt við samtímatónlist eftir íslensk tónskáld. Vox feminae kemur reglulega fram við ýmis tækifæri og heldur árlega tónleika að hausti og vori.

Kort af þinghelgi
Kórarnir syngja við Lögberg í Almannagjá. Hér má nálgast kort í pdf.