Auglýst er eftir landvörðum

Þjóðgarðurinn á Þingvöllum auglýsir eftir landvörðum í ótímabundin störf frá 16. maí 2023.

Auglýsingin er birt á Starfatorgi Stjórnarráðsins og er sótt um starfið í gegnum vef Starftorgs.

Fyrirspurnunm vegna starfanna er hægt að beina til: 

Jóna Kolbrún Sigurjónsdóttir, Verkefnastjóri - jona@thingvellir.is
Fanney Einarsdóttir - fanney@thingvellir.is

Störf landvarða hjá þjóðgarðinum á Þingvöllum eru fjölbreytt, skemmtileg og krefjandi. Um vaktavinnu er að ræða og er starfsmönnum ekið til vinnu í upphafi vaktatarnar og frá vinnu í lok hennar.  

Helstu verkefni og ábyrgð

Starf við landvörslu felst m.a. í eftirliti með náttúru og umhverfi Þingvalla, umgengni, veiði, tjaldsvæðum og þjónustu við ferðamenn. Landverðir sjá um fræðslu, upplýsingagjöf og móttöku gesta, sinna léttu viðhaldi á innviðum, þrifum, upplýsingagjöf í þjónustumiðstöð og gestastofu á Haki ásamt öðrum tilfallandi verkefnum.  

Hæfniskröfur

  • Reynsla af landvörslu  er kostur en ekki skilyrði 
  • Landvarðarréttindi er skilyrði
  • Grunnþekking í skyndihjálp er kostur en ekki skilyrði 
  • Kunnátta í íslensku og ensku er skilyrði. Frekari tungumálakunnátta er kostur 
  • Ökuréttindi og hæfni til að aka bæði sjálf- og beinskiptum ökutækjum er skilyrði 
  • Umsækjendur skulu hafa hreint sakavottorð 
  • Reynsla af útivist og náttúrutúlkun er kostur en ekki skilyrði 
  • Umsækjandi þarf að búa yfir frumkvæði, vera jákvæður og með ríka þjónustulund 
  • Krafa er gerð um hæfni í mannlegum samskiptum og hafa ríkan samstarfsvilja 
  • Umsækjendur þurfa að tileinka sér þekkingu á þjóðgarðinum og nærumhverfi hans 
  • Umsækjendur þurfa að geta gengið í öll þau störf sem fyrir þá eru lögð 

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Báran, stéttarfélag hafa gert.

Ferilskrá skal fylgja umsókn og skulu umsóknir fara í gegnum starfatorg.is.  

Umsókn getur gilt sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út

Öll kyn eru hvött til að sækja um. 

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 20.02.2023